English
A+
A-

Leit

Skálabergið komið í höfn

Skálabergið kom til hafnar í gær, 16. maí um hádegisbilið og stendur við Miðbakka Faxaflóahafna. Starfsfólk og velunnarar tóku á móti skipinu á hafnarbakkanum og þegar tollarar höfðu unnið vinnu sína, var þegar hafist handa við að undirbúa veisluhöld um borð. Milli klukkan 17.00 og 20.00 fór mikill mannfjöldi um skipið og skoðaði það og naut veitinga sem í boði voru fyrir gesti. Brim þakkar fyrir hlýhug, gjafir og blóm sem bárust víða að og mun hafa þennan dag lengi í minnum.

Hér að neðan má sjá skipið á siglingu á Faxaflóa skömmu áður en það bar að landi en ljósmyndarinn Arnaldur Halldórsson tók myndina.

Víða leynast hæfileikar og "karlarnir" á Guðmundi í Nesi eru engin undantekning. Þeir hafa sett saman þetta bráðskemmilega kynningarmyndband sem unnið var þegar mettúrinn mikli var farinn.

gudmunundur_i_nesi_thumb 

Sjón er sögu ríkari og hlekkurinn hér að neðan leiðir ykkur að sýnishorninu.

Góða skemmtun!

Taflan hér að neðan sýnir nokkrar staðreyndir um hið nýja veiðgjald og áhrif þess á einstök fyrirtæki.

mismunun_brim